Experience the Charm of Tradition with Authentic Icelandic Handicrafts
Experience the Charm of Tradition with Authentic Icelandic Handicrafts
Á verkstæðinu mínu bý ég meðal annars til gamla íslenska jólatréð.
Þegar jólatré urðu fyrst vinsæl á Íslandi uxu ekki villt grenitré á landinu. Því voru fyrstu jólatrén heimasmíðuð úr staur og spýtum, stundum máluð rauð eða græn. Kerti voru brædd föst á tréð og stundum notaður mosi eða lyng til skreytinga.
Jólatréð mitt er ómálað svo þú hefur alveg frjálsar hendur með skreytingu eða stíl.
Handgert íslenskt jólatré. Passar vel í lítið eða stórt rými.
Fullkomið til að hafa á borði eða skenk.
Málaðu það ef þig langar eða hafðu það eins og það kemur.
Tréð hentar fyrir allskonar skraut, glitrandi kúlur, heimatilbúið pappírsskraut eða handsaumaða skrautið sem við seljum. Leyfðu sköpunargleðinni að taka völdin. Möguleikarnir eru óendanlegir. Þú getur meira að segja haft það alveg bert ef það passar best fyrir þig.
Allt skrautið okkar er handgert og passar mjög vel með trénu.
Hægt er að velja um þrjár stærðir.
Þar sem þetta er handgert skraut er ekkert alveg nákvæmlega eins.
Engilbert Handicraft
Copyright © 2024 Engilbert Handicraft - All Rights Reserved.
Powered by GoDaddy